Toyota Corolla
Klassískur kostur sem gefur þér réttindi á bæði beinskipta og sjálfskipta bíla.
- Góð tök á kúplingu og gírskiptingu
- Full réttindi — beinskipt og sjálfskipt
- Traustur og fyrirsjáanlegur kennslubíll
Hjá Keyra Vel færðu persónulega kennslu sem er sniðin að þínum hraða og þörfum.
Bóka fyrsta tímann Sjá verðskráLofturLöggiltur ökukennari
Ég heiti Loftur og er löggiltur ökukennari á höfuðborgarsvæðinu. Ég er þriggja barna faðir og er fæddur og uppalinn í Breiðholti. Ég legg mikla áherslu á þolinmæði og umferðaröryggi. Markmiðið mitt er að hjálpa þér að keyra vel til framtíðar. Kennslan fer fram samkvæmt námskrá til almennra ökuréttinda.
Ef þú ert með einhverjar spurningar þá vil ég endilega heyra í þér. Netfangið mitt er Loftur@keyravel.is.
Kennslan er sniðin að þínum hraða, styrkleikum og þörfum.
Við finnum tíma sem falla vel að skóla, vinnu og daglegu lífi.
Við æfum það sem skiptir máli.
Ég kenni á tveimur ólíkum bílum svo þú getir valið það sem hentar þér best.
Klassískur kostur sem gefur þér réttindi á bæði beinskipta og sjálfskipta bíla.
Nútímalegur rafbíll — frábær kostur ef þú veist að þú munt eingöngu keyra sjálfskipta bíla.
B-réttindi eru algengustu ökuréttindin á Íslandi og veita heimild til að aka:
Ökunám má hefja við 16 ára aldur.
Fyrsta skrefið er að sækja um námsheimild rafrænt á Ísland.is.
Þegar rafræn umsókn um námsheimild hefur verið send inn þarf ökunemi að fara til sýslumanns með passamynd á ljósmyndapappír í stærðinni 35x45 mm, með einlitum bakgrunni, ásamt því að gefa undirritun og framvísa persónuskilríkjum. Ef einni eða fleiri heilsufarsspurningu er svarað játandi í umsóknarferlinu þarf einnig að skila inn læknisvottorði.
Þegar búið er að skila inn gögnum til sýslumanns getum við byrjað að skipuleggja fyrstu tímana. Sjá nánar á island.is/fyrsta-okuskirteini-namsheimild.
Ef þú ert ekki viss mæli ég oft með að byrja á beinskiptum bíl — þá geturðu seinna keyrt bæði beinskipta og sjálfskipta bíla með sama prófi. Ef þú veist að þú munt eingöngu keyra sjálfskipta bíla er Teslan frábær kostur til að læra á frá byrjun.
Já. Ef þú lærir og tekur prófið á sjálfskiptum bíl, eins og Teslunni, færðu tákntöluna 78 í skírteinið, sem takmarkar ökuréttindin við sjálfskipta bíla.
Tesla er mjög góður kennslubíll vegna þess að hann er sjálfskiptur, hljóðlátur og auðveldur í akstri. Nemendur geta einbeitt sér að umferðinni og aksturstækninni í stað þess að hafa áhyggjur af gírskiptingum. Bíllinn er einnig búinn nútímalegum öryggisbúnaði sem eykur öryggi og stuðlar að þægilegri kennslu.
Margir upplifa Tesla líka sem auðveldari kennslubíl fyrir byrjendur. Þar sem engin gírskipting eða kúpling er til staðar geta nemendur einbeitt sér að stýri, hraða, umferðarmerkjum og umhverfinu. Það getur dregið úr streitu fyrstu ökutímana og auðveldað námsferlið.
Já. Ef þú ert með B-réttindi sem takmarkast við sjálfskipta bíla (tákntala 78) geturðu tekið ökukennslu á beinskiptum bíl. Flestir nemendur þurfa um 2–6 ökutíma, en fjöldinn fer eftir fyrri reynslu og færni.
Að lokinni kennslu tekur þú verklegt ökupróf á beinskiptum bíl. Þegar prófið hefur verið staðist er tákntala 78 fjarlægð úr ökuskírteininu og þú mátt aka bæði sjálfskiptum og beinskiptum bílum. Ekki þarf að taka bóklegt próf aftur.
Veldu Tesla ef þú ætlar að aka sjálfskiptum bílum. Veldu beinskiptan bíl ef þú vilt öðlast ökuréttindi sem gilda fyrir bæði beinskipta og sjálfskipta bíla.
Lágmarksfjöldi ökutíma fyrir verklega prófið er 15 talsins. Algengt er að nemendur taki fleiri ökutíma en fjöldinn ræðst af framförum hvers og eins.
Nei — reglur um ökunám mæla fyrir um að bóklegt og verklegt nám skuli vera samþætt þannig að þau fari fram samhliða. Fyrsti hluti bóklega námsins er yfirleitt tekinn stuttu eftir að verklegu tímarnir hefjast.
Þetta er einstaklingsbundið og fer eftir fjölda ökutíma, hversu ört þú vilt taka tímana og hvernig gengur í bóklega náminu samhliða. Við skipuleggjum tímana saman út frá þínum hraða og þörfum.
Það er fullkomlega eðlilegt! Fyrstu tímarnir fara rólega af stað — við byrjum í rólegu umhverfi áður en við færum okkur út í meiri umferð.
Þegar þú stenst ökuprófið færðu bráðabirgðaskírteini sem gildir í 3 ár. Eftir 1 ár með bráðabirgðaskírteini getur þú óskað eftir að fara í akstursmat hjá ökukennara hafir þú ekki fengið refsipunkt eða sætt sviptingu á síðastliðnum 12 mánuðum.
Akstursmat er mat sem ökumaður með bráðabirgðaskírteini fer í til að fá útgefið fullnaðarskírteini. Í akstursmatinu metur ökukennari hvort ökumaður aki örugglega, sjálfstætt og í samræmi við umferðarreglur.
Hægt er að fara í akstursmat þegar ökumaður hefur haft bráðabirgðaskírteini í að minnsta kosti 12 mánuði og uppfyllir önnur skilyrði til útgáfu fullnaðarskírteinis, meðal annars að hafa ekki fengið punkta eða verið sviptur ökuréttindum á síðastliðnum 12 mánuðum.
BE-réttindi veita heimild til að draga þyngri eftirvagna en B-réttindi ein og sér. Með BE-réttindum máttu aka:
Þetta þýðir að:
Mikilvægt að hafa í huga. Þótt þú hafir BE-réttindi máttu aldrei draga meira en framleiðandi bílsins leyfir.
Til að öðlast BE-réttindi þarftu meðal annars að:
Þú getur fyllt út formið hér á síðunni. Einnig getur þú sent mér tölvupóst á netfangið Loftur@keyravel.is eða haft samband við mig í síma 697-7626.
Já, eftir framboði. Markmiðið er að bjóða sveigjanlega tíma sem henta skóla, vinnu og daglegu lífi.
Ég kenni á íslensku eða ensku.
Venjulega er gert upp eftir hverja 5 ökutíma og er reikningur sendur í heimabanka greiðanda. Það má skoða annað fyrirkomulag ef það hentar betur. Áður en farið er í ökuprófið verður að vera búið að gera upp.
Hægt er að nálgast ýmsar upplýsingar á Ísland.is. Sjá nánar hér: island.is/okunam.
Fylltu út formið hér að neðan og ég hef samband fljótlega til að staðfesta tíma. Þú getur líka hringt í 697-7626 eða sent póst á Loftur@keyravel.is.